Ekki ætla ég að rekja allt í smáatriðum sem á daga okkar dreif, en við fórum nokkrum sinnum inn í Kolding, m.a. í sund, en þar er yfirbyggð sundhöll með vatnagarði. Þar undu börnin vel og sérstaklega þótti Oddi Vilberg gaman að henda sér fram af háum stökkpalli og sýndi hann mikla leikni og hugdirfsku í þessum æfingum sínum. Ragnar Fannberg dundaði sér hins vegar í barnapolli þar sem voru leikföng og hægt að sulla og sprauta. Í einni ferðinni átti að vísa minni kæru og tiltölulega löghlýðnu tengdamóður upp úr lauginni þar sem hún hafði ekki þvegið hárið á sér í sturtu (en hún hafði þvegið það heima um morguninn). Hún lýsir þessu vel í pistli á bloggsíðu sinni. Við röltum einnig um götur borgarinnar, fórum í skemmtilegan bæjargarð þar sem börnin gátu farið í alls konar tæki og Ragnar fór m.a. í siglingu á litlum árabáti á tjörn í garðinum (að sjálfsögðu með foreldrum sínum). | ||
| ||
Svo rann laugardagurinn 21. júní upp, en þá var komið að því að halda suður á bóginn. í sveitasælu skammt norðan við bæinn Grasten á Suður-Jótlandi, býr dóttir Hauks (Hulla) ásamt manni og börnum. Þangað var ferðinni heitið. Vel gekk að finna staðinn með hjálp tækisins, en vitanlega rataði Haukur þetta enda nokkrum sinnum áður heimsótt dóttur sína. Daginn áður hafði ég skutlað honum til Billund til að sækja bílaleigubíl. Hann datt í lukkupottinn og fékk mun stærri og flottari bíl en hann hafði pantað. Þetta var sjálfskiptur Opel Vectra station, splunkunýr og flottur. Við stoppuðum ekki lengi hjá Hullu en Haukur tók 3 afastráka með sér í bílinn og svo var ferðinni heitið norður á eyna Als, en þar er tækni - og skemmtigarðurinn Danfoss Universe. Svo var planið að mæta í grill hjá Hullu seinnipartinn. Við keyrðum í afskaplega góðu veðri framhjá Sönderborg og út á eyjuna Als. Danfoss Universe býður ungu fólki og fjölskyldum þeirra upp á ævintýraferðir inn í heim náttúru og tækni í ca 9 hektara ævintýragarði. Gestir takast á við líkamlegar áskoranir og kynnast heimi tækninnar með einstökum og skemmtilegum hætti. Gagnvirkum tækjum er beitt sem miðla töfrum bæði náttúru og tækni og útskýra sömuleiðis vel grundvallarlögmál vísindanna. Við komuna í garðinn vakti athygli gríðarstór bygging. "Blái teningurinn" var skáli sem Íslendingar reistu á Expo 2000 sýningunni í Hannover. Forráðamönnum Danfoss leist svo vel á skálann að þeir keyptu hann að sýningu lokinni og reistu í hinum nýja tæknigarði sínum. | ||
| ||
| ||
| ||
| ||
Enginn hefur lagt orð í belg!