Notice: Undefined index: theme in /var/www/virtual/betra.is/magnus/htdocs/includes/head.php on line 10

Notice: Undefined variable: pagetitle in /var/www/virtual/betra.is/magnus/htdocs/includes/head.php on line 63
Magnús - Ragnar talar kínversku
Magnús Már Magnússon
 

Notice: Undefined index: preview in /var/www/virtual/betra.is/magnus/htdocs/sida.php on line 9

Notice: Undefined index: searchterms in /var/www/virtual/betra.is/magnus/htdocs/sida.php on line 11

Ragnar talar kínversku

 

Um daginn kölluðum við á Hauk og Rögnu og grilluðum á nýja pallinum við Grundartjörnina (hann er þó ekki alveg tilbúinn). Ragnar Fannberg sýndi grillinu strax mikinn áhuga og fór að ræða um það við ömmu sína. Ég var með ljósmyndavélina og náði smá vídeóbút af samtalinu, þó ekki öllu. Vandamálið var bara það að  þetta tungumál skilur enginn annar en Ragnar Fannberg. Smellið á myndina hér fyrir neðan til að skoða myndbandið, en munið að kveikja fyrst á hátölurunum. Hafið einnig hugfast að svolítill tími getur liðið frá því að myndbandaglugginn opnast og þar til myndbandið fer af stað.

 
   
  kinverska.jpg 
   
 

Eins og lesendur hafa væntanlega tekið eftir (þ.e. ef einhverjir lesendur eru til staðar) hefur undirritaður verið frekar latur við skriftir í sumar. Það helgast kannski af því að hér standa yfir miklar framkvæmdir. Við létum smíða sólpall fyrir framan húsið en sjálf höfum við verið á kafi við að innrétta bílskúrinn, en þangað ætla Karlotta og Oddur að flytja. Þar er einnig lítil snyrting og geymsla. Ragnar Fannberg fær því rúmgott herbergi inni í íbúðinni, auk þess sem herbergi losnar sem við getum notað sem sjónvarpsherbergi. Ég er líklegur til að sýna myndir af þessu þegar allt er yfirstaðið, auk þess sem ég vonandi verð duglegri við bloggið.

 

Leggja orð í belg
2 hafa lagt orð í belg
01.08.2007 14:26:29
Engar áhyggjur, manni fyrirgefst alveg að taka bloggfrí öðru hvoru ;)
Þetta lagði Sigurrós í belginn
13.08.2007 22:38:42
Litli frændi greinilega alger snillngur!
Þetta lagði Birkir í belginn