Veðurfarið það sem af er þessum vetri hefur verið með ólíkindum hér sunnanlands. Norðlendingurinn á því ekki að venjast að sjá ekki snjó en fram til þessa hefur jörð náð að hvítna nokkrum sinnum en enn sem komið er hefur ekki komið snjór í þess orðs merkingu. Jólin og áramótin voru rauð en nýársdagur heilsaði ákaflega fallegur þótt ekki hefði snjóað. Það hafði fryst um nóttina og töluverður raki var í loftinu og það skapaði mjög fallega sýn. Tré og runnar, og raunar allt sem utandyra var, var hélað. Um hádegisbil fór ég í stuttan göngutúr um nágrennið og hafði myndavélina með, eins og sjá má hér að neðan. Alger kyrrð ríkti, logn og enginn á ferli. | ||||
2 hafa lagt orð í belg