Í gærkvöldi vorum við boðin í grill til tengdó, enda veðrið gott, sól og bjart, þótt hitastigið væri svosum ekki hátt. Þær mæðgur, Ragna og Sigurrós, höfðu af alúð og natni þrætt allskyns kjöt og grænmeti upp á grillpinna. Á sama pinnanum máti finna kjúkling, svín, sveppi, tómata, epli og margt fleira. Ekki þarf að taka það fram að þetta smakkaðist svo allt alveg guðdómlega og ekki spillti að Haukur bóndi bauð upp á humladjús með herlegheitunum. Að mat loknum settumst við svo í betri stofuna, fengum sterkt og gott kaffi með súkkulaði, og fórum svo að skoða gamlar myndir. Það var m.a. fróðlegt að skoða myndir af Guðbjörgu þegar hún var lítil skotta. Það sést nokkur svipur með henni lítilli og Ragnari Fannberg, það er nokkuð ljóst. Ég sló grasið í gær eins og ég hafði sagst ætla að gera, og það var eins gott því nú í morgunsárið er hér slagveðursrigning. Ég þurfti tvær umferðir við sláttinn, því bæði var grasið orðið mikið og eins var það nokkuð rakt í rótina og því vildi grasið klessast undir vélina og stífla gatið útí graspokann. En það er mikill munur að sjá flötina. Svo myrti ég nokkrar köngulær með Permasecti, en þær hafa verið að gera sig nokkuð heimakomna síðustu daga. | ||||
Mæðgurnar að framleiða grillpinna með aðstoð Karlottu | ||||
Afi Haukur með Ragnar Fannberg | ||||
PS: Við Guðbjörg eigum svo tveggja ára trúlofunarafmæli í dag, en við settum upp hringana í Hollandi þennan dag árið 2004. Sjá myndir úr þeirri ferð. | ||||
2 hafa lagt or belg