Laugardaginn 13. maí stóð Starfsmannafélag Vallaskóla (SVALL) fyrir gönguferð á fjallið Þríhyrning í Rangárvallasýslu. Við stjórnarlimir áttum von á góðri þátttöku, enda voru um 40 manns sem mættu í gönguna í fyrra. Þá var gengið frá Ölkelduhálsi á Hellisheiði að Nesjavöllum (sjá myndir úr þeirri ferð). Það urðu okkur því nokkur vonbrigði að aðeins 12 manns skyldu mæta í þessa göngu. Hins vegar upplifðu þessir 12 ákaflega skemmtilega gönguferð í frábæru veðri. | ||
| ||
Lagt var af stað frá Vallaskóla kl 15.00 og stefnan tekin á Fljótshlíðina. Heimamaðurinn Aron Hinriksson var útnefndur leiðsögumaður. Beygt var upp hjá Tumastöðum og ekið upp í Vatnsdal, en svo nefnist lítill dalur sem liggur vestan Þríhyrnings. Við Fiskána var stoppað og gönguskórnir hnýttir. Gönguleiðin er stikuð og liggur upp á háls sunnan fjallsins og þaðan beint upp að toppnum. Við ákváðum hins vegar að fara styttri leið en nokkuð brattari. Vel gekk að ganga en óneitanlega tók þetta nokkuð í þótt reyndar fjallageitur í hópnum hafi vart blásið úr nös. Við vorum ekki nema um einn og hálfan tíma að komast á toppinn og þá borgaði erfiðið sig. Útsýn af fjallinu er stórfengleg. Allt Suðurlandsundirlendið liggur fyrir fótum manns, allt frá Seljalandsfossi að Ingólfsfjalli. Í norðri glampar á Langjökul og Heklan er tignarleg skammt frá í norðaustri. Okkur til furðu var nánast logn á toppnum og því var unaðslegt að láta þreytuna líða úr fótunum á meðan maður naut hins stórfenglega landslags. Þeir misstu af miklu sem ekki komu með í þessa ferð. | ||
| ||
| ||
Í fjallinu milli tindanna þriggja er Flosadalur, en þar leyndust Flosi og menn hans fyrir óvinum sínum, eins og segir í Njáls-sögu.
Við dvöldum á tindinum í ca. hálftíma. Niðurferðin gekk vel en það sannaðist að göngustafir eru ómissandi hjálpartæki í svona göngu. Í Vatnsdalnum, skammt frá þeim stað er við hófum gönguna, sýndi Aron okkur Papahelli. Lítið gat sást framan á hól einum, en þegar inn var komið var hellirinn nokkuð stór og þar gat að líta op upp í gegnum þakið, líklega reykop ofan við hlóðir. Stefnan var næst tekin á bæinn Smáratún, en þar er rekin gisti- og veitingaþjónusta. Þar fengum við dýrindis sveppasúpu ásamt brauði og salatbar og gott var að skola þessu niður með norðlenskum humlasafa.
| ||
| ||
1 hefur lagt or belg